Parkour mót AK EXTREME

FIMAK í samstarfi við AK EXTREME ætla að halda parkour mót sunnudaginn 09.apríl kl. 13:00 og er
þessi viðburður lokahnikkurinn á AK EXTREME í ár. Keppnin fer fram í íþróttamiðstöðinni við Giljaskóla og opnar húsið kl. 11.30, upphitun hefst kl. 12.00 þar sem keppendur  á leiðsögn á brautinni og fá tækifæri til að prófa hana áður en keppni hefst.

Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 3. april.


Keppt verður í stórri hindrunarbraut með tímatöku, jafnframt verða trikk sem framkvæmd eru í
brautinni metin og dragast sekúndur frá tímanum fyrir þau, ef keppandi aftur sleppir hindrunum eða
fellir niður hindranir á ferð sinni verða sekúndum bætt við tímann. Keppt verður fimm
aldursflokkum. Allir keppendur fá viðurkenningu fyrir þátttöku á mótinu.
Aukagrein verður síðan wall-flip session, þar sem verða veitt verðlaun fyrir besta og frumlegasta
stökkið. Að lokinni keppni verður síðan jam session, þar sem keppendur fá tækifæri til að kynnast
hvert öðru, sjá hvað aðrir eru að gera og vonandi læra eitthvað nýtt.

Þátttökugjald fyrir parkour iðkendur FIMAK er ekkert en fyrir aðra krónur 2.000  sem leggjast inn á reikning 0162-26-26491 kt. 550992-2649 við skráningu. Skráningu skal senda á framkvæmdastjóra FIMAK, Rut Jónsdóttir, á netfangið rut@fimak.is þar sem fram þarf að koma nafn og kennitala keppanda. Við viljum vekja athygli á því að keppendur þurfa ekki að koma á vegum félaga, þjálfarar FIMAK eru á svæðinu og verða keppendum innan handar.


Þetta er fjórða árið í röð sem við höldum þetta mót og hefur verið mikil ánægða með það. Við
breyttum sniðinu á því aðeins milli ára eftir ábendingar keppenda og þjálfara eftir síðasta mót og nú
leggjum við meiri áherslu á að keppendur fái tækifæri til að kynnast og læra hverjir af öðrum.
Hlökkum til að sjá sem flesta á Akureyri.
Upplýsingar um aðra viðburði AK EXTREME má finna hér: www.akx.is sjá einnig
http://www.akx.is/leikur/