Áhorfsvika

Um miðbik annar bjóðum við upp á áhorfsviku, sem verður auglýst á heimasíðu FIMAK og facebook síðu. Einnig munu allir fá skilaboð á sportabler með dagsetningu. Þá eru foreldrum, systkinum, ömmum og öfum  velkomið að sitja inn í sal á meðan á æfingu stendur og horfa á . Fyrir utan þessa einu áhorfsviku biðjum við ykkur að bíða fram í anddyri hússins ef þið ætlið að bíða eftir börnum ykkar á meðan æfingu stendur. Ef af einhverjum ástæðum þið komist ekki umrædda viku þá endilega talið við þjálfara hópsins um að fá að vera inni utan þess tíma sem getinn er. Ef þið eruð með lítið barn með ykkur þegar þið horfið á vinsamlegast passið að það sé EKKI inn á æfingasvæðinu það getur skapað hættu því hraðinn á iðkendum er mikill í hlaupum og slys geta orðið.

Með fyrirfram þökk

Stjórn FIMAK