Afmælisveislur FimKA

Við hjá FIMKA bjóðum foreldrum að halda afmælisveislur fyrir börn í fimleikasalnum hjá okkur.

Fyrirkomulagið er þannig að afmælisveisla hefst á klukkutíma fresti og varir í eina klst. og 45 mínútur í senn. Klukkutími inn í fimleikjasal og 45 mínútur fyrir framan salinn í aðalrými hússins til að vera með kökur/pizzur. Boðið verður upp á þetta á sunnudögum milli kl 11:00-16:00 (síðasta afmæli endar kl. 17:45).
Ekki er boðið upp á borðbúnað (glös,diska,sérvettur,ruslapoka) og því mikilvægt að hafa það með sér. 
Allur pappi ( pizza kassar ) þarf að taka með sér að afmæli loknu og fara með í næsta grendargám ( t.d. Krambúðin v.Borgarbraut )

Leiga á salnum kostar 22.500 kr.

Hægt er að panta á afmaeli@fimak.is, merkt afmæli ásamt því að hægt er að panta afmæli í gegnum síðuna.
Mikil eftirspurn er eftir að halda afmælisveislur í salnum og því hvetjum við fólk að panta tímanlega.

Vinsamlegast greiðið inn á eftirfarandi reikning í siðasta lagi á þriðjudegi fyrir áætlað afmæli.
Hafi salurinn ekki verið greiddur að morgni miðvikudags eða samið um greiðslufyrirkomulag er öðrum boðinn salurinn til leigu. 

Rknr. 0162-26-26491 kt, 550992-2649 og sendið staðfestingu á afmaeli@fimak.is með dagsetningu afmælis og tíma !!

Með von um að þið eigið eftirminnilega afmælisveislu.

Starfsfólk Fim.KA