Aðalfundur FIMAK

Aðalfundur Fimleikafélags Akureyrar fer fram fimmtudaginn 11. maí kl. 20:30 í íþróttahöllinni.  Við hvetjum foreldra, þjálfara og aðra sem láta málefni félagsins sig varða til þess að mæta á fundinn.  Það vantar fólk í trúnaðarstörf hjá félaginu, stjórn, nefndir og ráð.

Efni fundarins:

1. Fundarsetning og ávarp formanns.

2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.

3. Staðfest lögmæti fundarins.

4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.

5. Skýrsla aðalstjórnar, framkvæmdarstjóra og nefnda.

6. Reikningar félagsins.

7. Umræður um skýrslur.

8. Reikningar bornir undir atkvæði.

9. Lagabreytingar.

10. Kosning formanns.

11. Kosning stjórnarmanna og 2 varamanna.

12. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga fyrir næsta starfsár

13. Ákvörðun styrktarfélagsgjalda

14. Önnur mál.

Ársskýrsla  2016

Ársreikningur 2016

Fundagerð Aðalfundar 2016

Stjórn FIMAK