Vinna við æfingatöflu og gjaldskrá

Vinna er í fullum gangi við æfingatöflu og gjaldskrá vetrarins. Eldri keppnishópar í áhaldafimleikum byrjuðu í dag og eldri keppnishópar í hópfimleikum byrja á mánudaginn í næstu viku. Aðrir hópar byrja svo í byrjun september og látum við vita um leið og töflur liggja fyrir. Þau sem huga að breytingum, t.d. skipta um hóp eða hafa hug á að hætta, mega endilega láta vita á póstfangið snorri@fimak.is.