Upplýsingar vegna leikjanámskeiða

 

Mikið er spurt um leikjanámskeið hjá okkur í sumar og erum við að leggja lokahönd á þá dagskrá. Það er þó þegar orðið ljóst að við verðum með morgunnámskeið.

Morgunnámskeiðið er þannig upp sett að hægt er að mæta á tveimur tímum, annars vegar kl. 8:00 og hins vegar kl. 9:00 en námskeiðið er til kl. 12:00.

Verð námskeiðs sem telur 4 tíma á dag er 6.000 kr. en kr. 5.000 fyrir 3 tímana. Hægt er að senda póst á snorri@fimak.is til skráningar, merkt morgunnámskeið.

ATH. að tíminn milli kl. 8:00 og 9:00 er ekki barnapössun eins og þekkist, heldur verður farið með þau í leiki og fimleika á þeim tíma.

Einnig verður Parkour og, hopp og skopp eftir hádegi en nánari útfærsla á því kemur inn við fyrsta tækifæri.

Námskeiðin eru þrjú og standa yfir í viku:

12. - 16. júní.

19. - 23. júní

26. - 30. júní