T-Plús endurnýjar styrktarsamning sinn við FIMAK

Fimleikafélag Akureyrar og T Plús undirrituðu áframhaldandi styrktarsamning á dögunum. T Plús hefur undanfarin ár verið dyggur styrktaraðili FIMAK og eiga miklar þakkir skildar fyrir þann stuðning sem fyrirtækið hefur sýnt okkur.

T Plús er verðbréfafyrirtæki sem stofnað var hér á Akureyri árið 2009 og er staðsett í Skipagötu.Þorleifur Stefán Björnsson, framkvæmdarstjóri T Plús (fyrir miðju) undirritaði samninginn með Hermanni, formanni FIMAK, og Snorra, framkvæmdarstjóra FIMAK.