Stattu á höndum dagurinn

Á morgun, laugardaginn 24. júní fer fram Alþjóðlegi handstöðudagurinn. Ekkert fimleikafólk lætur þennan dag framhjá sér fara! Handstaða er undirstaða í mörgum fimleikaæfingum og er framkvæmd af fimleikafólki á öllu getustigi. Sýndu okkur þína hæfileika og leiktu þér að mismunandi útfærslum af þessari einföldu en um leið krefjandi fimleikaæfingu.

Taktu þátt í þessum skemmtilega degi, taktu mynd af þér og/eða þínum og notið hastagið #HandstandDay