Skráning iðkenda

Nú hefur verið opnað fyrir alla hópa í Nóri greiðslukerfinu. Mikilvægt er að allir skrái sem fyrst í kerfið svo hægt sé að nýta mætinga- og póstlista. Muna að skrá netföng þar sem um það er beðið svo að kerfið nýtist sem best. Einnig viljum við biðja þá sem eru nú þegar með netföng skráð að yfirfara og athuga hvort neföng séu rétt.

Hægt er að nálgast Nóri kerfið á fimak.is – UM FIMAK – Inheimta æfingagjalda. Þar er hlekkur, fimak.felog.is sem ýta þarf á og birtist þá Nóri. Undir þeim hlekk er svo annar hlekkur sem heitir leiðbeiningar og þar er hægt að sjá myndrænt hvernig standa skal að skáningunni.