Skráning hafin í grunnhópa A1,A2 og A3

FIMAK býður upp á grunnhópa í fimleikum þar sem farið er yfir grunnatriði í fimleikum. Iðkendur fá bæði að kynnast áhaldafimleikum og hópfimleikum. Eftir grunnhópana færa þau sig annaðhvort upp í áhaldafimleika eða hópfimleika.

A1 (7 ára - 2016árg ) 
Æfingartími kemur inn á allra næstu dögum þegar stundartaflan okkar verður klár.
Yfirþjálfari er Matthea Sigurðardóttir

A2 (6 ára - 2017 árg KVK) 
Æfingartími kemur inn á allra næstu dögum þegar stundartaflan okkar verður klár.
Yfirþjálfari er Matthea Sigurðardóttir

A3 (6ára - 2017 árg KK)
Æfingartími kemur inn á allra næstu dögum þegar stundartaflan okkar verður klár.
Yfirþjálfari er Ármann Ketilsson

Markmið grunnhópa :

  • Læra umferðareglur salarins
  • Kynnast æfingahringjum
  • Fara eftir munnlegum og sýnilegum fyrirmælum þjálfara
  • Öðlast góða samhæfingu, styrk og jafnvægi
  • Auka líkamsmeðvitund
  • Kunna helstu heiti grunnæfinga og þekkja heiti áhalda
  • Fara í gegnum helstu líkamstöður og grunnæfingar

 

Skráning fer fram hér : Vefverslun