Sala á félagsgöllum

Fimmtudaginn 05. október og þriðjudaginn 10. október nk. milli kl. 16:30 og 18:00 verður sala á félagsgöllum í anddyri fimleikahússins. Verið er að vinna í velja nýjan félagsbol áhaldafimleika drengja og stúlkna og hópfimleikabol fyrir yngri iðkendur. I-1 og I-2 nýta áfram bolina sem keyptir voru í fyrra. Við munum því ekki vera með félagsboli til sölu. Við hvetjum fólk til að reyna að fá lánaða boli eða skoða notaða boli sem auglýstir eru á búningasíðu FIMAK á Facebook.