Opnað hefur verið fyrir skráningu í íþróttaskóla FIMAK fyrir haustönn 2019.

 Opnað hefur verið fyrir skráningu í íþróttaskóla FIMAK fyrir haustönn 2019. Íþróttaskólinn er ætlaður börnum fæddum 2015 – 2017. Æfingar fara fram á laugardagsmorgnum.

Hópur  Fæðingarár  Æfingatími
S1         2017             09:00 – 09:45
S2         2016            09:30 – 10:15
S3         2016             10:00 – 10:45
S4         2015             10:30 – 11:15
S5         2015              11:00 – 11:45
 
Fyrirkomulagið er á þann hátt hjá þriggja og fjögurra ára iðkendum að þau eru án foreldra í tímunum. Það er þó leyfilegt að fylgjast með fyrsta laugardag hvers mánaðar. 

Foreldrar tveggja ára iðkanda eru vinsamlegast beðnir um að fylgja þeim eftir á æfingum.
 
Fyrsti tíminn á haustönn verður 7. september og stendur námskeiðið til 7. desember. Þetta verða 13 skipti en einn tími á haustönn fellur niður vegna mótahalds. Það er ekki komið í ljós hvaða laugardagur það verður.
 
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum skráningarsíðuna https://fimak.felog.is/. Athugið að takmarkað pláss er á námskeiðin.