Nýtt fimleikagólf

Í lok síðasta árs var samþykkt af bænum að kaupa nýtt fimleikagólf. Gamla gólfið hjá okkur er orðið átta ára gamalt en nýju gólfin eru byggð upp á allt annan hátt, eða með töluvert meiri fjöðrun.
Í dag kom svo gólfið í hús. Um helgina verður gamla gólfið tekið niður og það nýja sett upp. Inn á facebook síðum einhverja hópa hefur verið sett beiðni um aðstoð við þessa vinnu. Biðjum við ykkur kæru foreldrar að bjóða fram aðstoð okkar enda er félagið foreldrarekið. Eins og sjá má á myndinni er þetta þó nokkurt magn en margar hendur vinna létt verk.