Nýr starfsmaður á skrifstofu

Fimleikafélagið hefur ráðið til starfa Ólöfu Línberg Kristjánsdóttir á skrifstofu félagsins.  Ólöf mun einnig koma inn í þjálfun.  Ólöf er uppalin hjá Fimleikafélaginu og æfði fimleika til fjölda ára og þjálfaði einnig hjá okkur nokkur ár áður en hún fór suður í nám í íþróttafræði.  Ólöf úskrifaðist með B.Sc í Íþróttafræði frá HR 2015 og hefur undanfarin ár gegnt starfi framkvæmdastjóra fimleikadeildar Gróttu á Seltjarnarnesi.  Það er mikill fengur fyrir okkur að hafa fengið Ólöfu norður sem mun hefja störf 1. ágúst.