Styrkir fyrir börn og ungt fólk í íþrótta- og æskulýðstarfi

Félagsmálaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir á íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem koma frá tekjulágum heimilum.  

 

„Covid-19 faraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif á allt íþrótta- og tómstundastarf í landinu. Þegar þrengir að fjárhag fjölskyldna er mikil hætta á að þær dragi úr þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Félagsmálaráðuneytið hefur nú opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum. Markmiðið með þeim er að jafna tækifæri barnanna til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021.

Ásmundur kynnti aðgerðina í vor og er hún hluti af aðgerðapakka sem ætlað er að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem COVID-19 faraldurinn hefur haft á afkomu efnaminni heimila í landinu. Í framhaldinu verður ráðist í vitundavakningu á því í samstarfi við menntamálaráðuneytið, sveitarfélög, ÍSÍ og UMFÍ.

Ráðuneytið hefur jafnframt búið til myndbönd á níu mismunandi tungumálum þar sem styrkirnir og fyrirkomulag þeirra er kynnt. 

Haft er eftir Ásmundi Einari í tilkynningu frá ráðuneytinu að sérstaklega þrengi að hjá tekjulægri fjölskyldum. Rannsóknir sýni að íþróttir og frístundir hafi forvarnargildi og því sé gríðarlega mikilvægt að allt sé gert til að koma í veg fyrir brottfall hjá krökkum í íþróttum og tómstundum vegna faraldursins.

 

Svona er sótt um styrk

Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020.

Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og um 13.000 börn eiga rétt á styrknum. Sveitarfélögin annast afgreiðslu styrkumsókna eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á Ísland.is

Styrkina er hægt er að nota til  niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistanáms eða annarra tómstunda. Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna en fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga til dæmis varðandi hvaða íþrótta- og tómstundastarf er styrkhæft, hvaða gögnum beri að skila með umsókn og afgreiðslutími umsókna.

Rannsóknir hafa sýnt að mikilvægt er að halda sem flestum börnum virkum í íþrótta- og frístundastarfi og tryggja jafnt aðgengi barna og unglinga að slíku starfi. Lögð hefur verið áhersla á að ná til sem flestra forráðamanna og hefur því verið komið af stað kynningarátaki á fjölda tungumála um íþrótta- og tómstundastyrkina.

Sjá upplýsingar á heimasíðu UMFÍ.

Sjá upplýsingar á heimasíðu ÍSÍ.

NÁNAR UM STYRKINA Á ISLAND.IS