Kristín Hrund Vatnsdal Íslandsmeistari í 2. þrepi kvenna í áhaldafimleikum.

Rétt í þessu var Kristín Hrund Vatnsdal að tryggja sér Íslandsmeistaratitil í 2. þrepi kvenna í áhaldafimleikum. Mótið fer fram nú um helgina í Laugarbóli hjá Ármenningum og er keppt í öllum þrepum íslenska fimleikastigans bæði kvenna og karlahluta.  FIMAK óskar Kristínu og þjálfurum hennar Florin Páun og Mirela Páun til hamingju með þennan frábæra árangur.