Jóhann og Gísli á sínu fyrsta hópfimleikamóti – brons á EM Portúgal 2021

 Jóhann Gunnar Finnsson, 17 ára og Gísli Már Þórðarson, 16 ára voru valdir í 20 manna blandað unglingalandslið í lok júní á þessu ári. Þeir hafa æft stíft síðan þá, og dvalið tölvert mikið fyrir sunnan. Þeir voru í æfingabúðum á Akranesi síðastliðið sumar. Í september og október voru langar æfingahelgar hjá strákunum fyrir sunnan. Þeir þurftu svo undir það síðasta að dvelja eingöngu fyrir sunnan, þar sem æft var fimm sinnum í viku, þrjár klukkustundir í senn. Jóhann stundar nám við raungreinabraut MA. Hann hefur þurft að stunda nám sitt í fjarnámi síðan í október. Báðir hafa mætt miklum skilningi hjá skólunum sínum, en Jóhann hefur tekið próf í Verslunarskólanum. Gísli Már er nemandi í VMA á vélstjórnarbraut og hefur honum alltaf tekist að mæta í verklegu hlutana, þrátt fyrir mikið æfingaálag, og þess utan verið duglegur að læra fyrir sunnan. Báðir eiga langan feril í áhaldafimleikum að baki lengst af undir stjórn þjálfarans Jan Bogodoi. Jóhann byrjaði rúmlega þriggja ára og Gísli fimm ára og þeir skiptu yfir í hópfimleika á þessu ári og æfðu undir stjórn Erlu Ormarsdóttir, skömmu síðar voru þeir valdir í landsliðið sem er hreint ótrúlega flottur árangur hjá þeim. Báðir drengirnir eru í skýjunum með upplifunina og bronsið, “ skemmtilegasta félagslíf sem ég hef komist í og frábær upplifun af stórmóti” segir Gísli, “ekkert eðlilega gaman,” bætir Jóhann við. Gleðin og liðsandinn leynir sér ekki hjá þessu frábæra íþróttafólki og það má sjá á Instagram síðu hópsins juniormix_iceland.

Til gamans má geta að með þeim í landsliðinu er Hrafnhildur Tinna Brynjólfsdóttir sem hóf sinn fimleikaferil í áhaldafimleikum hjá FIMAK en skipti yfir í hópfimleika eftir að fjölskyldan fluttist til Danmerkur.  Ekki má svo gleyma Evrópumeisturunum í kvennaliðum.  Þar eigum við dálítið í Andreu Hansen sem æfði lengst af hjá FIMAK í áhaldafimleikum  en skipti svo yfir í hópfimleika.  Hún fluttist svo suður um 16 ára aldur til að geta stundað stífari æfingar í fimleikum sem hefur svo sannarlega skilað henni þeim árangri sem hún er að skila í dag. 

Fimleikafélag Akureyrar er einstaklega stolt af strákunum og óskar þeim og öllum iðkendum sem fóru á mótið innilega til hamingju.