Íslandsmót í frjálsum æfingum karla og kvenna.

María Sól Jólnsdóttir og Martha Mekkín Kristensen
María Sól Jólnsdóttir og Martha Mekkín Kristensen

Um helgina fór fram Íslandsmót í frjálsum æfingum karla og kvenna hjá fimleikadeild Ármanns í Reykjavík. Þar voru mættar til keppni tvær stúlkur úr meistaraflokki FIMAK þær Martha Mekkín Kristensen og María Sól Jónsdóttir. Þær stóðu sig mjög vel í keppni með fremsta fimleikafólki á landinu. Á laugardeginum var keppni í fjölþraut og gekk stelpunum mjög vel. Á sunnudeginum var keppt til úrslita á einstökum áhöldum. Þar kepptu stúlkurnar til úrslita á stökki og hafnaði María Sól í fjórða sæti og Martha Mekkín í fimmta sæti. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á RÚV báða dagana og höfðu kynnar orð á því á sunnudaginn að gaman væri að sjá keppendur koma inn frá fleiri félögum og að Fimleikafélag Akureyrar hefði ekki um árabil átt keppanda í úrslitum. FIMAK óskar Mörthu Mekkín og Maríu Sól til hamingju með árangurinn