Íslandsmót í 1.- 3. þrepi í áhaldafimleikum

Íslandsmót í 1.- 3. þrepi í áhaldafimleikum 
Laugardaginn 9. apríl næstkomandi fer fram Íslandsmót í áhaldafimleikum í sal Fimleikafélags Akureyrar við Giljaskóla. 
Íslandsmótið er fyrir keppendur í 1.-3. þrepi í áhaldafimleikum karla og kvenna en von er á um 90 keppendum frá 9 félögum. Þrep í fimleikum gefa til kynna kröfur til keppanda þar sem 1. þrep er erfiðasta þrep fimleikastigans. Þegar 1. þrepi er lokið öðlast keppendur rétt til að keppa í frjálsum æfingum sem líkja mætti við meistaraflokk. Þar sem þrepið er bundið við erfiðleikastig æfinga getur aldur keppenda í hverju þrepi verið breytilegur en flestir keppendur um helgina eru á aldrinum 11-14 ára. 
Í áhaldafimleikum kvenna er keppt á fjórum áhöldum, þ.e. gólfæfingum, stökki, tvíslá og jafnvægisslá. Í áhaldafimleikum karla er keppt á sex áhöldum, bogahesti, hringjum, stökki, tvíslá, svifrá og gólfæfingum. 
Dagskrá mótsins er eftirfarandi: 
08:40 3. þrep kvenna  
13:00 1.-2. þrep kvenna og 1.-2. þrep karla 
14:20 3. þrep karla 
 
Áhugafólk um fimleika er hvatt til að koma og njóta þess að sjá þetta unga og hæfileikaríka fimleikafólk. Miðaverð er kr. 2.000 fyrir 16 ára og eldri.