Hópfimleikamót á Akureyri

Hópfimleikamót verður haldið hjá Fimleikafélagi Akureyrar laugardaginn 26. mars. Við eigum von á besta hópfimleikafólki landsins. Mótið er fyrir annan, fyrsta og meistaraflokk.

Meðal þátttakenda eru m.a. nýkrýndir Evrópumeistarar kvenna í hópfimleikum og eigum við því von á frábærri sýningu.

Þetta er því einstakt tækifæri fyrir Akureyringa og nærsveitamenn til koma að sjá okkar færasta fólk.

Keppnin er í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn hefst kl. 12:40 og seinni hlutinn kl. 16:00. Dagskrá mótsins er að finna hér

Aðgangseyri er 2000kr fyrir 16 ára og eldri

Við hvetjum áhugafólk til að mæta!