Hnökrar á æfingum seinni part þessarar viku

Mikið er um að vera hjá þjálfurum okkar þessa vikuna. Í hádeginu fóru sex stökk- og hópfimleikaþjálfarar til Egilsstaða á námskeið sem stendur fram á sunnudag. Á morgun fara svo fjórir áhaldafimleikaþjálfarar suður á mót með sínum þrepum. Þetta þýðir að tíu þjálfarar eru frá um helgina.
Þetta gerir það að verkum að mikið af þjálfurum sem eiga að þjálfa sína flokka fimmtudag, föstudag og laugardag verða ekki á staðnum. Við höfum náð að manna flest alla tímana og falla einungis tveir tímar niður þrátt fyrir alla þessa manneklu.
Við vonum að þið sýnið okkur skilning á þessari stöðu.