Fullt starf hefst á mánudaginn, 4. september

Fullt starf hjá okkur í FIMAK hefst mánudaginn 4. september en þá tekur stundataflan í gildi fyrir alla hópa (Parkour, K-3, K-4 og K-5 er þó ekki komið í töflu). Búið á að vera að senda á alla sem voru í starfinu í fyrra (fyrir utan ofangreinda hópa). Því miður er póstlistinn ekki réttur að fullu og því gæti verið að einhverjir hafi ekki fengið póst en hægt er að hafa samband við skrifstofu, snorri@fimak.is, og fá frekari upplýsingar. Verið er að leggja lokahönd á ofangreinda P og K hópa og verður vonandi sendur póstur á þá í síðasta lagi á morgun, fimmtudag.
Þeir sem ekki voru í starfinu í fyrra og eru á biðlista geta á átt von á pósti um hvort laust sé í hópum í þessari viku og þeirri næstu.