Fullorðinsfimleikar

Fimleikafélag Akureyrar ætlar að bjóða upp á námskeið í fullorðinsfimleikum frá 8. október – 10. desember. Kennt verður á þriðjudagskvöldum frá kl. 19:30 – 20:45 í fimleikasalnum í Giljaskóla.

Námskeiðið kostar 15.000 kr. og fer skráning og greiðsla fram í gegnum skráningarkerfi Nóra https://fimak.felog.is/.

Þjálfari námskeiðsins er Lars.

Það verður opin æfing 8. október fyrir þá sem vilja koma og prufa.

Vinsamlegast athugið að takmarkað pláss er á námskeiðið, en ef að færri en 8 skrá sig þá verður námskeiðið fellt niður.