Foreldrafundir í fullum gangi

Þessa vikuna hófust foreldrafundir hérna hjá okkur í FIMAK. A-hópar og K-3 riðu á vaðið á mánudeginum og í kjölfarið hófust fundir hjá áhaldafimleikum sem lýkur núna á laugardaginn með fundi hjá F-6. Í næstu viku fara svo af stað fundir hjá hópfimleikum og Parkour hópum.
Góð þátttaka hefur verið á fundunum hingað til og vonumst við til að komandi fundir verði jafn vel sóttir.