FIMAK og MS gera nýjan rekstrarsamning

Fimleikafélag Akureyrar og Mjólkursamsalan undirrituðu áframhaldandi rekstrarsamning á dögunum.  MS hefur undanfarin ár verið dyggur samstarfsaðili FIMAK og er það mikið gleðiefni að svo verður áfram.

Þökkum við MS kærlega fyrir veittan stuðning og hlökkum til áframhaldandi samstarfs!