Fim - leikjaskóli FIMAK

 

Í sumar býður FIMAK upp á fim-leikjanámskeið fyrir 6-10 ára krakka (2010-2014).

Námskeiðin verða frá kl. 8:00 - 12:00 alla virka daga og standa yfir í viku í senn.

Námskeiðin samanstanda af fimleikaæfingum og ýmsum leikjum, bæði úti og inni. Krakkarnir þurfa að hafa með sér hollt og gott nesti.

Hulda Rún hefur umsjón með námskeiðunum. Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á skrifstofa@fimak.is eða senda skilaboð í gegnum sportabler.

Námskeiðin verða vikurnar.

  • 8. – 12. júní
  • 15. – 19. júní (4 dagar)
  • 22. – 26. júní
  • 29. – 3. júlí
  • 6. – 10. júlí
  • 10. – 14. ágúst

Námskeiðsgjald fyrir hverja viku (5 daga) er 8500 kr.

Skráning er hafin og fer fram í gegnum skráningarkerfi nóra  https://fimak.felog.is/. Upphaflega fór skráning fram í gegnum sportabler en þar sem ekki er hægt að nýta frístundastyrkinn þar færðum við skráninguna yfir í Nóra.

 

ATH að takmarkað pláss er á námskeiðunum. Einnig áskilur Fimleikafélagið sér rétt til að fella niður námskeið ef það er ekki næg þátttaka.