Akureyrarfjör 2017-skipulag

 

Akureyrarfjör Landsbankans 2017 fer fram 20. til og með 22. april nk.    ATH að engar æfingar verða hjá okkur þá daga vegna mótsins. Allir iðkendur sem æfa á virkum dögum, utan við parkour hópa, taka þátt í Akureyrarfjörinu.

Við hvetjum þau börn sem eiga félagsgallann að mæta í honum og vera í honum í innmars (gerum samt ekki þá kröfu að krakkar eigi gallann). Þau börn sem eiga svo fimleikafatnað eru hvött til að keppa í þeim fatnaði, annars bara í þeim fötum sem þau nota á æfingum. Það er ætlast til að börn með sítt hár séu með teygju þannig að hárið sé ekki fyrir þeim.
Skipulag fyrir Akureyrarfjörið er hægt að nálgast hérna