Aðalfundur FIMAK 2021

Aðalfundur Fimleikafélags Akureyrar fer fram fimmtudaginn 10. júní kl. 20:30 í matsal Giljaskóla  Við hvetjum foreldra, þjálfara og aðra sem láta málefni félagsins sig varða til þess að mæta á fundinn.  Það vantar fólk í trúnaðarstörf hjá félaginu, stjórn, nefndir og ráð. Hjálögð er tillaga að lagabreytingu.

Efni fundarins:

  1. Fundarsetning og ávarp formanns.
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
  3. Staðfest lögmæti fundarins.
  4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram  (Ársreikningur 2020).
  5. Skýrsla aðalstjórnar, framkvæmdarstjóra og nefnda.
  6. Reikningar félagsins.
  7. Umræður um skýrslur.
  8. Reikningar bornir undir atkvæði.
  9. Lagabreytingar.
  10. Kosning formanns.
  11. Kosning stjórnarmanna og 2 varamanna.
  12. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga fyrir næsta starfsár
  13. Ákvörðun styrktarfélagsgjalda
  14. Önnur mál.

Stjórn FIMAK