Nýtt gólf komið upp

Eins og greint var frá fyrir helgi kom nýtt fimleikagólf í hús. Um 30 manns mættu um helgina til að taka þátt í að taka það gamla saman og setja það nýja upp. Þetta gekk ótrúlega vel og var fyrr búið en fólk átti vona á. Við viljum þakka öllum þeim sem komu á einhvern hátt að vinnunni kærlega fyrir hjálpina. Starf sem þetta er foreldrarekið og liggur því mesti auður félagsins í félagsmönnum og foreldrum þeirra.

Gólfið er ekki fullklárað þar sem það þarf að liggja í 48 klst. áður en endanlega er gengið frá því. Þó er hægt að byrja að æfa á því svo enginn miskilingur verði með það.