Landsbankinn styrkir FIMAK áfram

Fimleikafélag Akureyrar og Landsbankinn hafa undirritað áframhaldandi samstarfssamning. Landsbankinn hefur undanfarin ár stutt dyggilega við FIMAK og eiga miklar þakkir skildar fyrir þann stuðning sem fyrirtækið hefur sýnt félaginu.
FIMAK hefur í nokkur ár verið í viðskiptum við bankann og hefur þjónusta bankans verið alveg einstök í okkar garð.
Arnar Páll Guðmundsson útibússstjóri undirritaði samninginn fyrir hönd bankans og Snorri framkvæmdarstjóra FIMAK fyrir hönd félagsins.