Fullt á fyrsta leikjanámskeiðið

Skráning á leikjanámskeiðin hefur verið vonum framar. Fullt er á fyrsta námskeiðið en 40 krakkar eru skráð á það. Enn er laust á næstu tvö námskeið en betra er að panta í tíma, því ekki er mikið eftir á námskeiðið sem hefst 19. júní, eða um 12 pláss. Námskeiðið 26. júní fer að nálgast að verða hálffullt og því enn eitthvað í að það fyllist.

Fyrsta parkournámskeiðið fyrir 11-13 ára (P3) er einnig orðið fullt og ekki nema tvö laus pláss í því sem hefst 19. júní en enn er nægt pláss í því þriðja og síðasta, sem hefst 26. júní sem og á öll námskeið í P1 og P2.