Afmælisveislur í fimleikasalnum

Við hjá FIMAK ætlum að taka upp þá nýjung að bjóða foreldrum að halda afmælisveislur fyrir börn í fimleikasalnum hjá okkur.

Fyrirkomulagið er þannig að afmælisveisla hefst á hálftíma fresti og varir í eina og hálfa klukkustund í senn, klukkutími inn í sal og hálftími fyrir framan salinn til að vera með kökur/pizzur. Því eru tveir hópar inn í salnum í einu. Boðið verður upp á þetta á sunnudögum í vetur. Næsti dagur til að komast að er 15. apríl. Verðið er 18.000 kr. og er hámarksfjöldi 25 manns. Séu fleiri þarf að leigja salinn þannig að einn hópur er inni allan tímann og er verðið því 25.000 fyrir það.

Hægt er að panta á snorri@fimak.is, merkt afmæli. Einnig þarf að koma fram hvaða ár barn er fætt, símanr., nafn afmælisbarns og ca. fjöldi.
Panta þarf minnst 11 dögum fyrir umbeðna dagsetningu eða 4. apríl. Föstudaginn 6. apríl verður svo sent út niðuröðun/tímasetningar til þeirra sem hafa pantað.