Aðalfundur FIMAK

Aðalfundur Fimleikafélags Akureyrar fer fram fimmtudaginn 31. maí kl. 20:00 í Giljaskóla. Við hvetjum foreldra, þjálfara og aðra sem láta málefni félagsins sig varða til þess að mæta á fundinn.  Það vantar fólk í trúnaðarstörf hjá félaginu, stjórn, nefndir og ráð.
Efni fundarins:

1. Fundarsetning og ávarp formanns.

2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.

3. Staðfest lögmæti fundarins.

4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.

5. Skýrsla aðalstjórnar, framkvæmdarstjóra og nefnda.

6. Reikningar félagsins.  2016 2017

7. Umræður um skýrslur.

8. Reikningar bornir undir atkvæði.

9. Lagabreytingar.

10. Kosning formanns.

11. Kosning stjórnarmanna og 2 varamanna.

12. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga fyrir næsta starfsár

13. Ákvörðun styrktarfélagsgjalda

14. Önnur mál.