Reikningar fyrir vorönn 2012

Reikningar fyrir vorönn 2012 Kæru foreldrar og iðkendur. Við sendum ykkur í síðustu viku reikninga fyrir æfingagjöldum fyrir vorönn 2012. Í reikningunum

Reikningar fyrir vorönn 2012

Kæru foreldrar og iðkendur.Við sendum ykkur í síðustu viku reikninga fyrir æfingagjöldum fyrir vorönn 2012.  Í reikningunum er búið að reikna systkinaafslátt og bæta við Samherjastyrk þar sem við á.  Systkinaafsláttur er 25% af lægri æfingagjöldum og samherjaafsláttur er fyrir öll grunnskólabörn.

Við sendum ekki greiðsluseðil þess önn nema ef þess er sérstaklega óskað. Biðjum við þá að hafa samband við skrifstofu. um síðustu mánaðarmót fór í heimabanka ykkar 1/3 æfingagjaldanna. Næstu gjalddagar verða um mánaðarmótin febrúar/mars og svo loks mars/apríl. Ef þið kjósið að fá greiðsluseðla, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu.

Því miður fengu nokkrir aðeins einn gjalddaga í stað þeirra þriggja sem eiga að vera.  Unnið er að lagfæringu á því.

Virðingarfyllst,
Stjórn FIMAK.


Svæði

Fimleikafélag Akureyrar

 

Íþróttamiðstöð við Giljaskóla
Kiðagil 11
Sími 462 1135
skrifstofa@fimak.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista okkar og fáðu fréttir af gangi mála.

Myndir á Picasa albúminu

Við höldum úti stóru myndasvæði á Picasa.
Smelltu á lógóið til að fara á myndasvæðið