Laugardagshópar fara í jólafrí

Laugardagshópar fara í jólafrí Síðasta æfing hjá laugardagshópum er 10.desember 2011. Síðasti tíminn hjá krílahópunum okkar hefur oft orðið aðeins

Laugardagshópar fara í jólafrí

Síðasta æfing hjá laugardagshópum er 10.desember 2011.  Síðasti tíminn  hjá krílahópunum okkar hefur oft orðið aðeins frábrugðin öðrum tímum þar sem stundum hafa mætt "óboðnir gestir" og truflað tímann.  En það er eins gott að ekki sjáist mikið til þeirra karla sem hafa verið að mæta því þeir eiga ekki að vera komnir til byggða svona snemma.  En við höfum alltaf tekið þeim fagnandi (allflest) og auðvitað gerum við það áfram.

Stjórn, þjálfarar og annað starfsfólk óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og við hlökkum til að starfa með börnunum ykkar á nýju ári.

Stjórn FIMAK


Svæði

Fimleikafélag Akureyrar

 

Íþróttamiðstöð við Giljaskóla
Kiðagil 11
Sími 462 1135
skrifstofa@fimak.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista okkar og fáðu fréttir af gangi mála.

Myndir á Picasa albúminu

Við höldum úti stóru myndasvæði á Picasa.
Smelltu á lógóið til að fara á myndasvæðið