Flýtilyklar
Brauđmolar
Velkomin(n)
Fimleikafélag Akureyrar
Íþróttamiðstöð við Giljaskóla, Kiðagili 11
Sími 462 1135, e-mail skrifstofu: skrifstofa@fimak.is
Frá og með 2. september verður skrifstofan opin þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 16-18 og fyrsta laugardag í mánuði milli kl. 9-13.
Uppfćrt: Inga Stella - ţri 31.ágú 2010
Nýjustu fréttir
-
Hjálparhellur óskast
Almennt - miđvikudagur 1.sep.10 17:29 - Hans R. - Lestrar 24 - Athugasemdir (0)Það vantar öfluga fimleikaiðkendur á aldrinum 13-15 ára (8. – 10. bekk) til að aðstoða Ármann með yngstu hópana á laugardögum. Áhugasamir eru beðnir um að senda póst á skrifstofa@fimak.is
-
Sala á fimleikafatnađi
Almennt - ţriđjudagur 31.ágú.10 22:50 - Inga Stella - Lestrar 41 - Athugasemdir (0)Næstu daga verður Heiða frá GK með fimleikavörur til sölu í anddyri Íþróttahússins við Giljaskóla á eftirfarandi tímum. Sjón er sögu ríkari.
Miðvikud. 1. september kl. 16:30-19
Fimmtud. 2. september kl. 16:30-19
Föstud. 3. september kl. 16:30-19
Laugard. 4. september kl. 10-13
-
Stundaskrá
Almennt - fimmtudagur 26.ágú.10 13:51 - Inga Stella - Lestrar 180 - Athugasemdir (3)Hér kemur stundaskrá félagsins fyrir veturinn 2010-2011. Stundaskráin tekur gildi frá með 1. september 2010. Vinsamlegast athugið að einhverjar breytingar geta orðið á stundaskrá og hópum næstu 3 vikurnar. Hér er listi yfir iðkendur og hópaskiptingu.
Verðskrá verður birt um helgina.
Stjórn FIMAK
-
Stór stund í sögu fimleikafélags Akureyrar
Almennt - mánudagur 23.ágú.10 22:40 - Hans R. - Lestrar 262 - Athugasemdir (4)
Í dag var brotið blað í sögu fimleika á Akureyrar þegar fyrsta æfingin var haldin í nýju og fullkomnu fimleikahúsi Akureyringa. Óhætt er að segja langþráður draumur fimleikafólks hafi ræst í dag.
Það var eins og að horfa á krakka á dótadegi í leikskóla þegar æfingarnar fóru fram í dag. Bros var á hverju andliti, jafnt á þjálfurum sem og iðkendunum.
Til hamingju fimleikafólk og til hamingju Akureyringar.
-
Laugardagshópar
Almennt - sunnudagur 22.ágú.10 19:40 - Hans R. - Lestrar 153 - Athugasemdir (0)Á síðast stjórnarfundi var ákveðið að falla frá innheimtu staðfestingargjalda hjá laugardagshópum. Gjald laugardagshópa fyrir haustönn verður 12.000 kr. líkt og hefur verið undanfarin ár. Hægt verður að greiða fyrir haustönnina laugardagana 4. september og 11. september. Þeir sem ekki sjá sér fært að greiða á þeim laugardögum fá senda greiðsluseðla. Um leið og við biðjum ykkur afsökunar á þessum ruglingi viljum við benda á að allir hópalistar eru nú komnir á heimasíðuna okkar. Stundaskrá og verðskrá fyrir aðra hópa á að koma á netið á morgun eða í allra síðasta lagi á þriðjudag.
Með kveðju,
Stjórnin
-
Upfćrsla hópa komin á netiđ
Almennt - sunnudagur 22.ágú.10 00:09 - Inga Stella - Lestrar 121 - Athugasemdir (0)Nú er búið að uppfæra alla hópa og setja á netið undir tenglinum "iðkendur og hópar". Það á enn eftir að raða þjálfurum niður á suma hópa, það verður gert strax eftir helgi ásamt því að stundaskrá verður kláruð.
Vakin er athygli á að einhverjar tilfærslur hafa átt sér stað og munu eiga sér stað fyrstu vikurnar eftir að starfið hefst. Þetta á sérstaklega við um nýskráða iðkendur og þá sem eru að koma inn eftir hlé.
Athugasemdir skal senda á skrifstofa@fimak.is
Stjórn FIMAK
Leit

Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Samtals: 311518